Obama hringdi í útvarpsþátt

Barack Obama. stækka

Barack Obama. SCANPIX DENMARK

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hringdi í útvarpsþátt, þar sem ríkisstjóri Virginíuríkis sat fyrir svörum, og kvartaði yfir umferðinni í norðurhluta ríkisins.

Tim Kaine, ríkisstjóri, sem er einn af helstu stuðningsmönnum forsetans, tók þátt í mánaðarlegum þætti á WTOP útvarpsstöðinni þar sem hann svaraði spurningum frá hlustendum. Þegar 13 mínútur voru liðnar af þættinum tilkynnti stjórnandi þáttarins að næsti hlustandi héti Barry og væri frá Washington.

„Kaine ríkisstjóri, þetta er raunar Bandaríkjaforseti, sem er að hringja," sagði Obama. „Je minn eini," sagði Kane þá. „Ég vil kvarta yfir umferðinni í Norður-Virginíu," sagði Obama.  „Frekar en að fjalla um það vil ég segja hvað við erum stolt af verkum þínum," sagði ríkisstjórinn þá.

Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, sagði að hafi forsetinn kynnt sig sem Barry þegar hann hringdi í útvarpsstöðina hafi það verið vegna þess að hann vildi koma Kane á óvart.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is