Fengu heila ömmu sinnar í poka

Ekki liggur fyrir hvernig á því stóð að heili ömmunnar …
Ekki liggur fyrir hvernig á því stóð að heili ömmunnar var sendur í poka til nánustu ættingja. Rax / Ragnar Axelsson

Bandarísk fjölskylda ætlar að lögsækja útfararstofu eftir að þau fengu heila ömmu sinnar sendan í poka með persónulegum eigum eftir dauða hennar.

Konan lést í bílslysi og var fjölskyldan búin að kveðja hana hinstu kveðju þegar þau uppgötvuðu sendinguna undarlegu. Pokinn hafði verið skilinn eftir í bíl fjölskyldunnar yfir nótt innan um persónulegar eigur ömmunnar eftir jarðarförina en uppgötvaðist þegar fjölskyldan fann stækan óþef stafa frá honum. Pokinn var merktur með nafni ömmunnar og orðinu „heili". Lögmaður fjölskyldunnar segir að engir syrgjandi ástvinir ættu nokkurn tíma að þurfa að upplifa svona áfall.

Heilinn hefur nú verið grafinn ásamt öðrum jarðneskum leyfum ömmunnar. Eigandi útfararstofunnar fullyrðir að sökin sé ekki þeirra heldur annarrar útfararstofu í nágrannaríkinu Utah. Fjölskyldan hafi þvert á móti öll fengið mjög góða þjónustu hjá þeim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson