Dick Francis látinn

Feðgarnir Dick og Felix Francis. Myndin er af opinberri heimasíðu …
Feðgarnir Dick og Felix Francis. Myndin er af opinberri heimasíðu rithöfundarins.

Enski spennusagnahöfundurinn Dick Francis er látinn, 89 ára að aldri. Francis var einn vinsælasti rithöfundur Breta og skrifaði rúmlega 40 metsölubækur.

Francis var þekktur knapi á sínum tíma og  m.a. sérlegur knapi drottningarmóðurinnar bresku á fimmta og sjötta áratugnum. Fyrsta bók hans var sjálfsævisaga, sem kom út 1957, en fyrsta skáldsöguna, Dead Cert, sendi hann frá sér fimm árum síðar.

Síðustu bækur Dick Francis voru Dead Heat og Silks, sem sonur hans, Felix, skrifaði með föður sínum.

Spennusögurnar áttu það allar sameiginlegt að sögusviðið tengdist veðreiðum eða hestamennsku af einhverju tagi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson