Í tygjum við þrjá menn

Kate Hudson á frumsýningu Nine
Kate Hudson á frumsýningu Nine STEFAN WERMUTH

Leikkonan Kate Hudson er sögð í tygjum við þrjá menn þessa dagana, en hún sleit nýlega sambandi sínu við körfuboltahetjuna Alex „A-Rod“ Rodriquez. Fyrrverandi eiginmaður og barnsfaðir Hudson, Chris Robinson, hefur áhyggjur af lauslæti hennar og áhrifum þess á sex ára son þeirra.

Þeir þrír sem Kate Hudson á að hafa átt stefnumót við nýverið eru ljósmyndarinn Darren Ankerman, kylfingurinn Adam Scott og ónefndur verðbréfasali.

Haft er eftir heimildarmanni New York Daily News að Chris Robinson sé áhyggjufullur yfir þessu og ekki síst af ungum syni þeirra skötuhjúa fyrrum. Robinson viti þó að hann geti ekkert gert í málinu þar sem Kate Hudson njóti þess að vera í nærveru karlmanna.

Er Hudson sögð hafa verið í tygjum við þessa þrjá menn á meðan hún var á föstu með Rodriquez, og tekið upp þráðinn að nýju er hún sagði körfuboltahetjunni upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir