Erum í hamingjukasti

Erna Hrönn Ólafsdóttir, Hera Björk Þórhallsdóttir og Heiða Ólafsdóttir á sviðinu í Ósló í kvöld. stækka

Erna Hrönn Ólafsdóttir, Hera Björk Þórhallsdóttir og Heiða Ólafsdóttir á sviðinu í Ósló í kvöld. Reuters

mbl.is Eftir Matthías Árna Ingimarsson

„Þetta er dásamleg tilfinning. Þetta var það sem við þurftum. Við erum búin að vera vinna eins og skepnur fyrir þessu undafarnar vikur og mánuði, þannnig það er dásamlegt þegar maður uppsker eins og maður sáir. Þá er ekki hægt annað en að vera í hamingjukasti. Ég grét eins og fegurðardrottning; alt eftir bókinni," sagði Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona. 

Lag hennar og Örlygs Smára, Je ne sais quoi, var eitt 10 laga, sem komust áfram í úrslit úr fyrri undanúrslitum Eurovision söngvakeppninnar í Noregi í kvöld.

„Þetta er það sem til þurfti til að fá miðann inn í úrslitakeppnina og héðan í frá er þetta bara gleði frá upphafi til enda," sagði Hera Björk við mbl.is. 

-Hvernig voru taugarnar þegar komið var að síðasta umslaginu?

„Ég hef haft svo góða tilfinningu fyrir þessu og svo var salurinn að hrópa: Áfram Ísland. Þannig það var ekkert annað í boði og ég vissi að við færum áfram. Mig grunaði að þetta yrði svona og að við kæmum upp síðust. Okkur er spáð góðu gengi, þá eiga þeir þetta til og keyra upp spennuna."

Hera Björk sagði, að eins og oft áður hefðu lönd frá austurhluta Evrópu virst vera sterkust þegar kom að atkvæðagreiðslunni. „En þetta segir okkur að við erum með gott atriði, grípandi lag og það er mikil leikgleði í hópnum sem er að skila sér til áhorfenda. Við höfum bara þrjár mínútur til að gera okkar besta og það er að skila sér."

-Hvernig var svo stemmingin í höllinni?

„Hún var alveg meiriháttar. Ég átti satt best að segja ekki von á svona miklum fagnaðarlátum, en þetta var alveg stórkostleg stund þegar við loksins stigum á svið."

-En ertu aldrei stressuð á sviði?

„Jú þegar ég hef kannski ekki æft nóg. En ég er svo vel undirbúin hérna og þá er þetta ekkert stress, bara gaman."

Myndasyrpa: Keppt í Eurovision

Fyrra undanúrslitakvöldið í Eurovision söngvakeppninni í Ósló í Noregi fór fram 25. maí. Ísland komst áfram í úrslitin sem verða 29. maí ásamt 9 öðrum þjóðum: Bosníu & Hersegóvínu, Moldavíu, Rússlandi, Grikklandi, Portúgal, Hvíta-Rússlands, Serbíu, Belgíu og Albaníu.

Birtingardagur: Þriðjudaginn, 25. maí 2010

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is