Nick Lachey trúlofaður Minnillo

Nick Lachey
Nick Lachey

Söngvarinn Nick Lachey og unnusta hans Vanessa Minnillo eru trúlofuð en þau hafa verið par frá árinu 2006. Að vísu skildu þau skiptum í stuttan tíma á síðasta ári en voru fljót að taka saman á ný þegar þau fundu út að þau gátu ekki lifað án hvors annars.

Lachey, sem áður var kvæntur Jessicu Simpson, hefur nú beðið Minnillo og á hann að hafa gert það á ströndinni í Kaliforníu ef marka má slúðurmiðla.

Samkvæmt vef People gaf hann henni demantshring við bónorðið.  Á Lachey að vera í skýjunum vegna væntanlegs brúkaups og tístir um það á samskiptavefsíðu sinni á Twitter hversu hamingjusamur hann er.

„Hey þið öll. Ef þið hafið heyrt orðróm um trúlofun mína þá get ég sagt ykkur að það er hárrétt. Vanessa og ég gætum ekki verið hamingjusamari. Takk fyrir alla ástina," skrifar hann á síðuna og er greinilega mikið í mun að það fari ekki fram hjá neinum að hann sé ánægður með trúlofunina.

Unnusta hans hefur heldur ekki legið á þeirri skoðun sinni að það sé fátt annað sem myndi gleðja hana meir en að rölta inn kirkjugólfið og giftast Lachey. Hún hefur ítrekað sagt að það sé ekki bara kynlífið sem geri það að verkum að hún sé svo ástfangin af honum heldur sé það hans innri maður sem hafi eitthvað um það að segja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson