Mikill kippur í jólatréssölu

Íslenska stafafuran
Íslenska stafafuran mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Talið er að um 35.000-40.000 lifandi jólatré seljist á Íslandi á ári og þar af er fjórðungur til þriðjungur innlend framleiðsla. Seljendur eru á því að kaupendur séu fyrr á ferðinni í ár en áður og segja að mikill kippur hafi verið í sölunni um nýliðna helgi.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni voru flutt inn um 199.000 kg af jólatrjám án rótar 2008 og um 247.000 kg í fyrra. Ef reiknað er með að trén séu 8 kg að meðaltali gera þetta um 25.000 tré 2008 og um 31.000 tré í fyrra.

Að sögn Ragnhildar Freysteinsdóttur hjá Skógræktarfélagi Íslands fóru að minnsta kosti um 9.000 íslensk tré á markað 2008 og um 11.000 tré í fyrra. Hún segir að innlend framleiðsla vegi ekki þyngra í heildinni en raun ber vitni vegna þess að tiltölulega nýlega hafi tré markvisst verið ræktuð sem jólatré og þau séu því ekki enn almennilega komin á markað. Í öðru lagi hafi innfluttu trén verið ódýrari.

Normannsþinur vinsælastur

Of mikið framboð var í fyrra og því halda seljendur að sér höndum í ár. Danski normannsþinurinn er vinsælasta tegundin en íslenska rauðgrenið stendur alltaf fyrir sínu og stafafuran hefur sótt mikið á. Leifur Gunnarsson, verslunarstjóri hjá Byko í Breidd, segir að blágreninu hafi líka verið vel tekið, en sums staðar séu sumar stærðir af normannsþini uppseldar.

Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri í Garðheimum, segir að svolítil söluaukning hafi verið í fyrra og byrjunin núna lofi góðu. „Það var mikið að gera um síðustu helgi og verður örugglega enn meira um þá næstu,“ segir hún og bætir við að normannsþinurinn sé alltaf vinsæll og þeir sem kynnist stafafuru vilji helst ekkert annað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson