Mary, krónprinsessa Dana, var flutt á fæðingardeild Rigshospitalet í Kaupmannahöfn en hún og Friðrik krónprins, eiginmaður hennar, eiga von á tvíburum.
Fyrir eiga þau hjón tvö börn, Ísabellu og Kristján.
Danska konungsfjölskyldan tilkynnti í ágúst að Mary bæri tvíbura undir belti og ætti von á sér í janúar. Friðrik sagði þá að hann hefði alltaf langað til að eignast mörg börn en Mary sagði í blaðaviðtali í haust, að þau Friðrik hefðu ekki ákveðið sérstaklega að eignast barn nú.