Kim Kardashian í felum

Kim Kardashian
Kim Kardashian Reuters

Kim Kardashian er farin í felur og aðeins fáir útvaldir vita hvar hún heldur sig. Hún neitar að láta kvikmynda sig fyrir raunveruleikaþættina sína fyrr en á nýju ári, til að sýna að hún sé ekki að reyna að græða á skilnaðinum sem hún stendur í við eiginmann sinn til tveggja mánaða, Kris Humphries.

Kardashian sneri aftur til Los Angeles á föstudaginn eftir stutta ferð til Ástralíu. Á flugvellinum beið hennar sægur af papparössum og segja kunnugir að hún hafi skipt um bifreið á miðri leið heim til að villa um fyrir ljósmyndurunum og komast óséð þangað sem hún heldur sig nú.

Hún getur þó ekki falið sig lengi því innan skamms hefjast tökur á myndinni Hjónabandsráðgjafinn þar sem hún fer með hlutverk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt öllum líki ekki málflutningur þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja. Njóttu þess að vera með fjölskyldunni í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Loka