Föst í hlutverki hjónadjöfuls

Bandaríska kántrísöngkonan LeAnn Rimes tilkynnti í síðustu viku að hún hefði ákveðið að leita sér hjálpar við kvíða. Ástæða vanlíðunar hennar mun fyrst og fremst vera sú staðreynd að hún er af mörgum stimpluð hjónadjöfull. Því til viðbótar óttast hún að nýi maðurinn í lífi hennar muni reynast henni ótrúr.

Þegar söngkonan hóf ástarsamband við núverandi eiginmann sinn, Eddie Cibrian, árið 2009, voru bæði í hjónabandi og yfirgáfu þau maka sína til að byrja nýtt líf saman.

Samband Rimes og Cibrian fékk strax harða gagnrýni í fjölmiðlum sem fjölluðu ítarlega um málið. Höfðu margir uppi stór orð um hvernig þau hefðu bæði skilið eftir maka sína, og Cibrian að auki börn sín, í sárum.

„LeAnn hefur glímt við mikið óöryggi frá því að hún byrjaði að vera með Eddie,“ segir vinur parsins í samtali við tímaritið Us Weekly.

„Hún tekur mjög nærri sér að vera sífellt kölluð hjónadjöfull og hefur stanslaust áhyggjur af því að Eddie haldi framhjá henni. Henni hefur liðið illa út af þessu öllu frá byrjun og ástandið heldur áfram að versna.“

LeAnn og Cibrian kynntust við tökur á sjónvarpsmyndinni Northern Lights. Hann yfirgaf eiginkonu sína, Brandi Glanville, en þau eiga saman tvo unga syni, og hún batt enda á hjónaband sitt og Deans Sheremets. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson