Aurora úthlutaði 6,5 milljónum

Styrkþegar hönnunarsjóðs Auroru í dag.
Styrkþegar hönnunarsjóðs Auroru í dag. mbl.is

Í dag úthlutaði Hönnunarsjóður Auroru 6,5 milljónum til hönnuða og hönnunarverkefna.  Sjóðurinn hefur nú úthlutað 17 milljónum til hönnuða og hönnunarverkefna á árinu 2012. 

Þeir hönnuðir og hönnunarverkefni sem að þessu sinni hljóta styrk eru:

Fathönnunarverkefnið Ostwald Helgason (1,5 milljónir) Ingvar Helgason og Susanne Ostwald fatahönnuðir, fyrir frekari þróun og markaðsstarf fyrir fatalínu sína og þátttöku í tískuvikunni í New York í maí 2013.

Spark Design Space  (1,2 milljónir) - Fyrir gerð kynningarefnis um hönnun og hönnuði sem sýnt hafa í galleríinu.

Vöruhönnunarverkefnið Textasíða (1,2 milljónir) - Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdótrir vöru- og grafískir hönnuðir, fyrir frekari vöruþróun og undirbúning verkefnisins Textasíður fyrir fjöldaframleiðslu.

Rannsóknar- og hönnunarverkefni byggt á ævistarfi Gísla B. Björnssonar (1,2 milljónir) -  Ármann Agnarsson, grafískur hönnuður, fyrir rannsóknar- og hönnunarverkefni byggt á ævistarfi grafíska hönnuðarins Gísla B. Björnssonar í tengslum við uppsetningu sýningar sem nú stendur yfir í Hönnunarsafni Íslands.

Arkitektúr, bókverk (750 þúsund) - Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur fyrir rannsóknar- og hönnunarverkefni vegna undirbúnings að gerð bókar um sögu hönnunar og staðarvals margra helstu bygginga í Reykjavíkurborg.

Guðrún Eysteinsdóttir textílhönnuður (500 þúsund) - Styrkur til starfsnáms hjá Center for Advanced Textiles (CAT) í Glasgow, Skotlandi.

Hildigunnur Sigurðardóttir fatahönnuður (500 þúsund) - Styrkur til starfsnáms hjá fatahönnuðinum Roland Mouret í  London.

Um er að ræða aðra úthlutun úr sjóðnum á þessu ári, en þá níundu frá því Hönnunarsjóðurinn hóf starfsemi sína í byrjun árs 2009. Aftur verður úthlutað úr sjóðnum á vormánuðum 2013.

Hönnunarsjóður Auroru hefur það að markmiði að renna styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og arkitektum fjárhagslega aðstoð. Markmið hans er að styrkja hönnuði til að koma sjálfum sér, hugmyndum sínum, vörum og verkefnum á framfæri og aðstoða við vöruþróun og markaðssetningu hérlendis og erlendis. Einnig getur sjóðurinn haft frumkvæði að sjálfstæðum verkefnum sem þjóna tilgangi hans svo sem að standa að viðurkenningum eða sýningum og vera samstarfsvettvangur hönnuða og aðila úr atvinnu- og viðskiptalífinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson