Nýtt myndband við Vor í Vaglaskógi

Strákarnir í Kaleo eru á mikilli siglingu þessa dagana.
Strákarnir í Kaleo eru á mikilli siglingu þessa dagana. Árni Sæberg

Monitor frumsýnir í dag glænýtt myndband hljómsveitarinnar Kaleo við lagið Vor í Vaglaskógi. Lagið trónir á toppi vinsældarlista Rásar 2 um þessar mundir. Hljómsveitin hefur vakið mikla athygli að undanförnu og útgáfa þeirra að þessu sígilda dægurlagi hefur slegið rækilega í gegn.

Strákarnir kláruðu að skjóta myndbandið á mánudaginn og fengu til liðs við sig þá Baldvin Vernharðsson og Hörð Frey Brynjarsson sem stjórnuðu upptökum. Þeir vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra sem komu að gerð myndbandsins þar sem allir gáfu vinnu sína.

Hljómsveitina Kaleo skipa Mosfellingarnir Jökull Júlíusson, Daníel Ægir Kristjánsson, Davíð Antonsson og Rubin Pollock. Strákarnir undirbúa nú sína fyrstu plötu sem væntanleg er seinna í sumar.

Kaleo verður á Gamla Gauknum í kvöld ásamt hljómsveitinni Vintage Caravan og hefjast tónleikarnir kl. 22:30.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson