Mbl.is sýnir nú fjórðu og síðustu heimildamyndina sem Bára Brandsdóttir gerði sem hluta af lokaverkefni í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands síðastliðið vor. Myndirnar eru viðtöl við íslenska listamenn þar sem fengin er innsýn í starf þeirra, þeir sýndir í vinnuumhverfi sínu, skyggnst inn í bakgrunn þeirra, hvaðan þeir sækja sér innblástur o.fl.
Í mynd dagsins er rætt við Ingu R. Bachmann, skartgripahönnuð, sem lærði m.a. listræna gullsmíði á Spáni. Nú rekur hún skartgripaverslunina Hringu á Laugavegi en þar er hún jafnframt með vinnustofu sína.
<div><span><span><br/></span></span></div>