Miðar á Timberlake frá 14.990 kr.

Justin Timberlake.
Justin Timberlake. AFP

Miðaverð á tónleika Justins Timberlake í Kórnum í Kópavogi í ágúst verður á bilinu 14.900-24.990 krónum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Tónleikarnir fara fram 24. ágúst.

Miðar í stæði kosta 14.990 krónur. Miðar í stúku B kostas 19.990 og í stúku A 24.990.

Um það bil 1.300 sæti eru samtals í stúkunni (um 800 í A svæði og um 500 í B svæði). Um 14.700 stæðismiðar eru í boði. 

Það skal tekið fram að stúkan er aftast í salnum og að stæðið er eitt svæði. Hægt er að að sjá teikningu af sal og stúku hér.

WOW Air og Vodafone eru bakhjarlar Justin Timberlake tónleikanna á Íslandi.

Bæði Vodafone og WOW Air verða með sérstakar forsölur fyrir sína viðskiptavini miðvikudaginn 5. mars milli kl. 10 - 17. Munu þessi fyrirtæki tilkynna innan skamms hvernig þær forsölur munu fara fram. Miðar í öll svæði verða í boði í forsölunum en athugið að takmarkað magn miða er í boði í þeim, segir í frétt Senu.

Almenn miðasala hefst svo fimmtudaginn 6. mars kl. 10 á Miði.is.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson