Eru Pattinson og Perry nýjasta parið?

Leikarinn Robert Pattinson.
Leikarinn Robert Pattinson. mbl.is/AFP

Leikarinn Robert Pattinson og söngkonan Katy Perry eru mögulega að hittast, en þau eyddu miklum tíma saman á Coachella-tónlistarhátíðinni á dögunum.

„Þau voru eitthvað að hittast fyrir ári en þau fóru hvort í sína áttina,“ sagði heimildarmaður The Sun og bætti við: „Perry og Pattinson eru bestu vinir og það eru straumar á milli þeirra. Þeim þykir vænt hvoru um annað en þau hafa alltaf passað sig á því að koma Kristen Stewart ekki í uppnám.“

Hins vegar er Kristen Stewart búin að sætta sig við að allt sé búið á milli hennar og Pattinsons. „Stewart er að vinna í sínum málum og er búin að sætta sig við að það er kominn tími til að þau haldi áfram með líf sitt. Perry og Pattinson voru saman alla helgina á Coachella og þau eru þegar búin að skipuleggja páskana saman,“ sagði heimildarmaðurinn.

Söngkonan Katy Perry.
Söngkonan Katy Perry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson