Cameron Diaz trúir ekki á einkvæni

Leikkonan Cameron Diaz.
Leikkonan Cameron Diaz. mbl.is/AFP

Leikkonan Cameron Diaz, sem nýlega gaf út bókina The Body Book, hefur verið áberandi í fjölmiðlum í kringum útgáfu bókarinnar og hefur meðal annars talað opinskátt um kynfærahár eins og greint var frá á mbl.is á dögunum.

Það nýjasta er hins vegar að hún sagði að einkvæni væri ekki mögulegt og öll hjónabönd væru dæmd til að mistakast.

„Við getum öll átt mismunandi vinkonur. Öll þessi vinasambönd. Ég veit það til dæmis með mínar vinkonur að ég geri mjög mismunandi hluti með hverri og einni. Ég tala um ólíka hluti. Okkur líkar við hluti sem öðrum líkar ekki. Ég á ýmislegt sameiginlegt með þeim og við gerum ýmislegt saman,“ sagði Diaz í viðtali við In Style og bætti við: „Af einhverri ástæðu byrjum við í samböndum og ætlumst til þess að einn maður geti skilið „allt“ sem við erum að hugsa og geti komið til móts við allar okkar þarfir. Ég held að það sé þá sem allt bregst.“

Hún sagði einnig í samtali við In Style að hún teldi að konur væru alveg jafnlíklegar til þess að halda framhjá og karlmenn. 

„Ég er ekki viss um að nokkur einstaklingur sé fyrir einkvæni af náttúrunnar hendi. Við búum öll yfir þessum sömu dýrslegu hvötum. En við búum í samfélagi þar sem við höfum verið tamin til að gera þetta,“ sagði Diaz.

Leikkonan Cameron Diaz.
Leikkonan Cameron Diaz. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson