Er hún búin að slíta trúlofuninni í annað sinn?

Leikkonan Uma Thurman.
Leikkonan Uma Thurman. mbl.is/AFP

Svo virðist sem leikkonan Uma Thurman sé hætt við að giftast kaupsýslumanninum og barnsföður sínum, Arki Busson.

Samkvæmt heimildum Daily Mail er Kill Bill stjarnan hætt við allt saman í annað sinn í sambandssögu þeirra, og ástæðan er sögð vera fjarbúðin, en þau búa hvort í sínu landinu. 

Heimildarmaður blaðsins sagði að þau hefðu aðeins nokkrum sinnum á síðustu mánuðum sést saman opinberlega - og síðast voru þau saman í fyrirpartíi fyrir Bafta-verðlaunin í febrúar og virtust þau mjög óhamingjusöm.

„Thurman og Busson áttu að mæta saman á opinberan viðburð í apríl en Thurman mætti án þess að bera trúlofunarhringinn. Það var einnig á stefnuskránni að Busson myndi mæta svo að eina ástæðan fyrir því að hann mætti ekki var líklega að þau eru hætt saman,“ sagði heimildarmaður blaðsins.

Leikkonan býr í New York, en Busson býr í Lundúnum, en það hefur reynst þeim erfitt.

Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem þau slíta trúlofuninni, en Thurman skilaði  trúlofunarhringnum árið 2009, eftir nokkurra ára samband. Árið 2011 byrjuðu þau svo aftur saman, og hann bað hennar í annað sinn er hún gekk með dóttur þeirra Rosalind Busson.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson