Grét í brúðkaupinu

Söngvarinn Adam Levine og eiginkona hans Behati Prinsloo.
Söngvarinn Adam Levine og eiginkona hans Behati Prinsloo. mbl.is/AFP

Adam Levine grét í brúðkaupi sínu og Behati Prinsloo, að því er vefsíða RadarOnline greinir frá.

Maroon 5-söngvarinn giftist fyrrverandi Victoria's Secret-fyrirsætunni Prinsloo á laugardaginn síðastliðinn og grét við athöfnina.

Brúðkaupið héldu þau í Cabo San Lucas í Mexíkó og var athöfnin sögð stutt og hjartnæm. 

Heimildarmaður segir Adam Levina hafa tárast þegar hann fór með brúðkaupsheitin en hann samdi þau á tuttugu mínutum. Í brúðkaupsheitunum mátti heyra söngvarann segja: „Behati, ég elska þig meira en ég elska sjálfan mig og við vitum öll hvað ég elska sjálfan mig mikið.“

Í brúðkaupið mættu meðal annars Robert Downey jr., Jonah Hill og Jason Segel.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson