Anton Sigurðsson er handritshöfundur og leikstjóri íslenska sálfræðitryllisins Grafir og bein sem frumsýnd verður hérlendis í október. Þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Björn Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdóttur fara með aðalhlutverkin í myndinni en hún fjallar um Gísla og Sonju sem lifðu farsælu lífi þegar allt fór að síga á ógæfuhliðina.
Þau koma illa út úr hruninu en þegar dóttir þeirra deyr fer allt niður á við.