Mikilvægt að hitta vinkonurnar

Jessica Alba.
Jessica Alba. mbl.is/AFP

Jessica Alba þykir mikilvægt að hitta vinkonur sínar við og við og kvarta undan eiginmanninum, að því er tímaritið Self greinir frá.

Leikkonan segir það mikilvægt að taka sér hlé frá fjölskyldulífinu og stunda félagslífið hvort í sínu lagi við og við svo að heimilislífið verði ekki að byrði.

Þá grínast hún með að hún verði að fá að kvarta undan eiginmanninum eða öðru í lífinu og fá útrás svo að fjölskyldulífið verði ekki of vanafast.

Jessica Alba á tvö börn, þau Honor og Haven, með eiginmanni sínum Cash Warren. Leikkonan varð 33 ára í apríl síðastliðnum en segist hafa hræðst að verða þrítug en sé hamingjusamari en nokkurn tímann.

Leikkonan er í góðu formi og hefur fallegan vöxt en viðurkennir að henni þyki leiðinlegt að stunda hreyfingu. Hún segist hafa fengið nóg af ræktinni en frá því hún var 17 ára til 27 ára hafi hún nær alltaf fengið leikhlutverk sem kröfðust þess að hún væri í góðu formi. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson