Vill eignast barn

Ellen DeGeneres og Portia de Rossi.
Ellen DeGeneres og Portia de Rossi. mbl.is/AFP

Portia de Rossi vill eignast barn, að því er tímaritið inTouch greinir frá.

Leikkonan fræga er 41 árs og hafði áður útilokað barneignir með eiginkonu sinni Ellen DeGeneres sem er 56 ára. Þær giftust árið 2008 en nú virðist þeim hafa snúist hugur og hyggjast þær stofna fjölskyldu saman.

Heimildarmaður sagði í viðtali við tímartiði inTouch að Portia de Rossi hefði ekki talað um annað þessa dagana en að stofna fjölskyldu. Heimildir herma einnig að parið hafi haft samband við staðgöngumæðrunarstöð í Encino í Kaliforníu til að skoða hvaða kostir væru í boði fyrir þær.

Samband þeirra tveggja beið hnekki nýlega vegna áfengisneyslu Portia de Rossi en hún sótti  meðferð gegn áfengis- og eiturlyfjafíkn.

Að sögn heimildarmanns hafa þær áður leyst vel úr sínum vandamálum saman og þær munu einnig gera það í þetta skiptið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson