Mætti drukkin í flug

Fyrirsætan Kate Moss.
Fyrirsætan Kate Moss. mbl.is/AFP

Kate Moss mætti full í flug og án flugmiða, að því er Mail Online greinir frá.

Ofurfyrirsætan mætti í flug á mánudaginn síðasta og hafði gleymt flugmiðanum sínum en þetta varð til þess að fluginu var seinkað um tvo og hálfan tíma.

Kate Moss var að ferðast frá Golturkbuku í Tyrklandi til London en þegar hún áttaði sig á því að hún hafði gleymt flugmiðanum myndaðist löng röð annarra flugfarþega. Atvikið varð til þess að fluginu varð seinkað og var henni hleypt um borð án miða.

Flugvallargestir tóku eftir því að fyrirsætan virtist hafa fengið sér allmikið í glas þar sem hún var mjög hávær og virtist sama hvað annað fólk hélt þegar hún skammaðist í forstjóra flugfélagsins.

Kate Moss virtist ekki hafa áhyggjur af því að fluginu seinkaði en hún spjallaði við aðra flugfarþega vélarinnar og virtist hress að sögn sjónarvotta.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson