Bitur út í Ryan Reynolds

Scarlett Johansson.
Scarlett Johansson. mbl.is/AFP

Scarlett Johansson er bitur út í fyrrverandi eiginmann sinn, Ryan Reynolds, að því er National Enquirer greinir frá. 

Leikkonan er sögð ævareið út í Ryan Reynolds fyrir að hafa gifts Blake Lively eftir að hafa verið með henni í aðeins eitt ár.

Scarlett Johansson og Ryan Reynolds voru gift í fjögur ár áður en slitnaði upp úr sambandinu árið 2011. Hún segist viss um að hann hafi haldið framhjá sér með Blake Lively þegar tökur á kvikmyndinni Green Lantern áttu sér stað árið 2010 en Blake Lively og Ryan Reynolds fóru þar með aðalhlutverk og kynntust við tökur myndarinnar.

Heimildarmaður sagði í viðtali við National Enquirer að þó að ekki séu til neinar sannanir sem sýni fram á að hann hafi verið Scarlett Johansson ótrúr sé hún viss um að hann hafi haldið framhjá henni með Blake Lively vegna þess að þegar tökur hófust á Green Lantern fór allt niður á við í sambandi þeirra hjóna.

Þannig þykir Scarlett Johansson Blake Lively hafa stolið Ryan Reynolds frá sér.

Scarlett Johansson var miður sín þegar hún frétti að parið hefði gift sig í leyni í september á síðasta ári í Suður Karólínu í Bandaríkjunum og var mjög sár að Ryan Reynolds hafi gift sig svo stutt eftir að þau skildu.

Heimildarmaður segir Scarlett Johansson hafa upplifað mikil særindi og hún sé viss um að Blake Lively hafi tælt Ryan Reynolds viljandi þó að hún vissi að hann var í sambandi á þeim tíma sem tökur kvikmyndarinnar The Green Lantern áttu sér stað.

Scarlett Johansson er nú að hitta auglýsingastjórann Nate Taylor og segist hamingjusöm og ætli að bíða í nokkur ár áður en hún giftir sig aftur.

Leikkonan hefur opnað sig um samband sitt við Ryan Reynolds og segir sambandið hafa verið fallegt og mikil ást hafi ríkt þeirra á milli.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson