Kylie Jenner fékk nýjan Range Rover í afmælisgjöf frá foreldrum sínum, að því er vefsíða Mail Online greinir frá.
Bruce og Kris Jenner gáfu dóttur sinni glænýjan Range Rover í tilefni af 17 ára afmæli hennar en Kylie Jenner deildi mynd af nýja bílnum á Instagram í gær.
Kylie Jenner segist vilja láta breyta bílnum og gera hann frekar upp áður en hún haldi almennilega upp á afmæli sitt.
Kylie Jenner hefur verið bendluð við son Will Smith, Jaden Smith, en talið er að þau eigi í ástarsambandi.
Á síðasta ári fékk Kylie Jenner rándýran Mercedes bíl í 16 ára afmælisgjöf stuttu eftir að hún fékk bílprófið en klessti bílinn í Los Angeles þremur vikum eftir að hún fékk hann. Enginn slasaðist í árekstrinum. Auk þessa hefur hún fengið fjöldann allan af sektum.
18 ára systir Kylie Jenner, Kendall Jenner, fékk einnig Range Rover frá foreldrum sínum þegar hún varð 16 ára í nóvember árið 2011.