Munaðarlausi bjarnarhúnninn sem fannst í Pýreneafjöllunum við landamæri Spánar og Frakklands er kominn með nýtt heimili.
Húnninn sem nefndur hefur verið Auberta var fjögurra mánaða er hún fannst ein og yfirgefin og hafa frönsk og spænsk yfirvöld gert víðtæka en árangurslausa leit af móður hennar síðan.
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að sleppa húninum frjálsum en Auberta hefur alltaf snúið aftur til mannabyggða. Nú hefur hins vegar sérstakt svæði verið girt af fyrir húninn sem unir þar vel við.