Fagnaði með minnstu fatafellu heims

Joe Jonas úr hljómsveitinni The Jonas Brothers.
Joe Jonas úr hljómsveitinni The Jonas Brothers. Ljósmynd/Wikipedia

Einn meðlimur hljómsveitarinnar The Jonas Brothers hélt upp á afmæli sitt á föstudaginn síðasta og fékk meðal annars minnstu fatafellu heims til að koma fram í afmælinu.

Joe Jonas fagnaði 25 ára afmæli sínu á Ceacher‘s Madhouse í MGM Grand í Las Vegas í Bandaríkjunum síðasta föstudag.

Í afmælinu fékk hann kjöltudans frá minnstu fatafellu heims ásamt því að önnur dvergvaxin fatafella kom fram en hún bar nafnið Mini Miley Cyrus.

Joe Jonas var í afmælinu ásamt bróður sínum Nick og kærustu hans Oliviu Culpo en hún var ungfrú alheimur ársins 2012.

Joe Jonas hætti nýverið með kærustu sinni, grafíska hönnuðinum Blanda Eggenschwiler, en þau höfðu verið saman í tvö ár.

Áður hefur Joe Jonas verið með þeim Camille Belle, Demi Lovato, Ashley Greene og Taylor Swift.

The Jonas Brothers árið 2009. Joe Jonas er í miðjunni.
The Jonas Brothers árið 2009. Joe Jonas er í miðjunni. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson