Hafnaði leikhlutverki

Harry Styles.
Harry Styles. mbl.is/AFP

Söngvarinn Harry Styles hafnaði hlutverki í kvikmynd, að því er vefsíða Mail Online greinir frá.

Kvikmyndin ber nafnið Tulip Fever en kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein sagði Harry Styles hafa hafnað boðinu um leikhlutverk í myndinni.

Í myndinni hefði hann haft tækifæri á því að kyssa ofurfyrirsætuna Cöru Delevingne en meðal annarra leikara í kvikmyndinni eru þau Dame Judi Dench, Christopher Waltz og Zack Galifianakis.

Söngvarinn hafnaði boðinu vegna þess að hann verður mikið á ferðalögum vegna tónleikafara hljómsveitarinnar One Direction.

Leikhlutverkið fékk Matthew Morrison en Harvey Weinstein segist viss um að Harry Styles muni ekki neita honum næst þegar hann býður honum leikhlutverk í kvikmynd.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson