Sýndu dónaskap á hátíðinni

Kendall Jenner, Kim Kardashian og Kylie Jenner á Emmy verðlaunahátíðinni.
Kendall Jenner, Kim Kardashian og Kylie Jenner á Emmy verðlaunahátíðinni. mbl.is/AFP

Kim Kardashian West og systur hennar Kendall Jenner og Kylie Jenner voru gómaðar á Emmy-verðlaunahátíðinni við það að hvíslast á og skoða símann sinn þegar allur salurinn þagði í eina mínútu til að minnast Michaels Browns sem féll fyrr í mánuðinum fyrir hendi lögreglu í Ferguson í Missouri í Bandaríkjunum, að því er New York Daily News greinir frá.

Flestir eru sammála um að þótt snjallsímar séu orðnir  stór hluti af lífi okkar gildi ákveðnar reglur um hvenær sé viðeigandi að nota þá og hvenær ekki. Þetta uppátæki Kardashian og Jenner-systra fór þess vegna fyrir brjóstið á mörgum þar sem þær þóttu sýna mikinn dónaskap.

Rapparinn Common steig á svið á hátíðinni þar sem hann átti að kynna besta hip-hop-tónlistarmyndbandið og bað áhorfendur að þegja í eina mínútu og íhuga ástandið í Ferguson í Missouri í Bandaríkjunum.

Ástandið sem hann vísar í stafar af mótmælum almennings í Ferguson eftir að táningurinn Michael Brown var skotinn til bana af lögreglumanni í byrjun ágústmánaðar. Atvikið olli miklum usla meðal fólks vegna þess að Michael Brown var óvopnaður og segja vitni hann hafa haldið höndum fyrir ofan höfuð en lögreglumaðurinn skaut hann sex sinnum með þeim afleiðingum að hann lést.

Einnig reitti atvikið fólk til reiði vegna auðsýndra fordóma gegn blökkumönnum í Ferguson. Blökkumenn eru í meirihluta meðal bæjarbúa en þrátt fyrir það eru 50 af 53 lögreglumönnum þar hvítir, þar á meðal lögreglumaðurinn sem skaut Michael Brown, Darren Wilson.

Rapparinn Common bað þess vegna áhorfendur og gesti Emmy-verðlaunahátíðarinnar að þegja í mínútu fyrir Michael Brown og fyrir friði í Bandaríkjunum og öllum heiminum.

Hins vegar virtu systurnar þrjár, Kim Kardashian, Kendall Jenner og Kylie Jenner, ekki ósk rapparans og tóku ekki þátt í þagnarbindindinu líkt og aðrir gestir hátíðarinnar. Þess í stað fiktuðu þær í símum sínum og hvísluðust á en atvikið var myndað af myndatökumönnum hátíðarinnar og þess vegna sýnt í beinni, sem fór fyrir brjóstið á mörgum aðdáendum hátíðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson