Heillar Jennifer Lawrence

Chris Martin.
Chris Martin. Ljósmynd/Wikipedia

Chris Martin semur ástarlög fyrir Jennifer Lawrence, að því er tímaritið Us Weekly greinir frá.

Coldplay-söngvarinn Chris Martin og aðalleikkona Hunger Games-kvikmyndanna, Jennifer Lawrence, hafa sést saman síðan í júní á þessu ári en Chris Martin skildi við Gwyneth Paltrow að borði og sæng í mars á þessu ári eftir tíu ára hjónaband.

Heimildarmaður sagði í viðtali við Us Weekly að Chris Martin gerði sitt besta til að reyna að heilla Jennifer Lawrence upp úr skónum og að hann væri mjög hrifinn af henni vegna þess hversu afslöppuð hún væri.

Margir hafa sagt að Jennifer Lawrence sé alger andstæða Gwyneth Paltrow, en lífsstíll Paltrow einkennist af hollu mataræði og mikilli hreyfingu. Jennifer Lawrence hins vegar reykir og borðar nánast hvað sem henni sýnist.

Í fyrstu sagði Jennifer Lawrence vinum sínum að samband þeirra Chris Martins væri ekki á alvarlegum nótum en viðurkennir að hún verði sífellt hrifnari af honum.

Vinir söngvarans eru ánægðir fyrir hans hönd að sjá hann brosa á ný og halda lífinu áfram eftir skilnaðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson