Margt var um manninn í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi þegar hljómsveitin Nýdönsk hélt þar tvenna tónleika. Sveitin flutti nokkur lög af nýjustu afurð sinni, plötunni Diskó Berlín, í bland við sín vinsælustu lög auk laga sem heyrast sjaldnar.
Nýdanskir segja í tilkynningu að einn af hápunktum kvöldsins hafi verið þegar á annað hundrað diskódansarar tóku yfir salinn og dönsuðu við taktfast titillag plötunnar.
Dagskráin verður endurtekin í Hofi 27. september næstkomandi.