„Brúðkaupið okkar var sirkus“

Jennifer Lopez og Cris Judd voru gift í tvö ár.
Jennifer Lopez og Cris Judd voru gift í tvö ár. AFP

Fyrrverandi eiginmaður Jennifer Lopez, dansarinn Cris Judd, segir hjónaband þeirra Lopez hafa verið erfitt vegna þess hve mikla athygli það fékk.

Judd og Lopez gengu í það heilaga árið 2001 eftir að hafa verið trúlofuð í einn mánuð. Hjónabandið entist í tvö ár. „Þetta er rosalega erfitt. Það er brotið á friðhelgi þinni og þú ert ekki venjuleg manneskja lengur,“ útskýrði Judd í viðtali sem birtist í Us Weekly.

„Brúðkaupið okkar var sirkus. Ég held meira að segja að nokkrir einstaklingar hafi verið handteknir þegar þeir klifruðu upp á fjall og reyndu þannig að lauma sér inn. Það var erfitt að vera svona í sviðsljósinu en maður vissi svo sem hvað maður var að fara út í,“ sagði Judd sem trúir því þó að öll þessi athygli hafi ekki verið ástæða þess að hjónabandið entist eins stutt og raun bar vitni. „Þetta gekk bara ekki upp.“

Cris Judd hefur verið giftur núverandi eiginkonu sinni í fimm ár og saman eiga þau dóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson