Söngkonan Miley Cyrus heldur áfram að vekja á sér athygli en fyrr í vikunni þótti hún ganga langt yfir strikið þar sem hún lét flengja sig með mexíkóska fánanum á tónleikum.
Cyrus kom fram á tónleikum í Monterrey í Mexókó á fimmtudaginn. Cyrus stóð sig vel að mati áhorfenda þar til hún lét dansara flengja sig á rassinn með mexíkóska fánanum. Cyrus sló ekki í gegn með þessu athæfi sínu en mexíkósk yfirvöld athuga nú hvernig bregðast eigi við málinu. Þessu er greint frá á heimasíðu TMZ.
Cyrus gæti nú átt yfir höfði sér 36 klukkustunda fangelsisvist eða 144.000 króna sekt.