Pútín finnur ástina

Alina Kabaeva er kærasta Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta.
Alina Kabaeva er kærasta Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta. Mynd/Wikipedia

Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur nú fundið ástina, samkvæmt rússnesku slúðurpressunni. Lengi hafa gengið orðrómar um samband hans við fyrrverandi fimleikastjörnuna Alínu Kabaevu en nú telja menn sig hafa öruggar heimildir fyrir sambandi þeirra.

Pútín hefur áður neitað fyrir að eiga í sambandi við Kabaevu. Hún hefur verið þingmaður fyrir flokk Pútíns frá árinu 2007 en sagði af sér þingmennsku á dögunum þegar hún tók við sem stjórnarformaður einna stærstu fjölmiðlasamsteypna Rússlands. 

Kabaeva er þekkt út um allan heim eftir frækinn íþróttaferil. Hún vann til gullverðlauna í fimleikum á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004 auk þess sem hún á níu gullverðlaun á heimsmeistaramótum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson