Strákarnir í hljómsveitinni Stóns ætla að halda heljarinnar rokkveislu í Háskólabíó á laugardaginn, þann 4. október, og spila vel valin lög hljómsveitarinnar Rolling Stones.
„Engu verður til sparað,“ segir Frosti Jón Runólfsson, trommari Stóns. „Við höfum lagt okkur fram á síðustu misserum við að sjá til þess að þetta verði sýning eins og engin önnur.“
Á tónleikunum verða lög Rolling Stones spiluð í þeirri tímaröð sem þau voru gefin út þannig að farið verður vandlega yfir feril hljómsveitarinnar. Þá verður mikið lagt í búninga, ljós og framkomu að sögn Frosta.
„Þetta verður veisla fyrir augun jafnt sem eyrun,“ útskýrir Frosti sem hlakkar til að sjá sem flesta á tónleikunum á laugardaginn.