Nú styttist í að Borgríki 2 - Blóð hraustra manna verði frumsýnd í kvikmyndahúsum. Í nýjustu stiklunni má sjá að um æsispennandi kvikmynd er að ræða. Í helstu hlutverkum eru m.a. Darri Ingólfsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Myndin verður frumsýnd 17. október.
Myndin er sjálfstætt framhald Borgríkis og fjallar um Hannes, metnaðarfullan lögreglumann, sem lendir á hálum ís þegar hann hefur rannsókn á yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar eftir ábendingu frá fyrrverandi glæpaforingja sem situr inni. Hannes sér fram á að ná að slá tvær flugur í einu höggi, ná yfirmanninum en einnig erlendri glæpaklíku sem er með tökin á borginni. Til að ná þessu markmiði sínu dregur hann lögreglukonu með erfiða fortíð inn í aðgerðirnar, óafvitandi að erlenda glæpagengið ætlar sér stóra hluti og munu svífast einskis til verja sig.
Helstu hlutverk:
Darri Ingólfsson
Ágústa Eva Erlendsdóttir
Ingvar E. Sigurðsson
Sigurður Sigurjónsson
Zlatko Krickic
Hilmir Snær Guðnason
Leikstjórn: Olaf de Fleur
Framleiðendur: Kristín Andrea Þórðardóttir, Ragnar Santos og Olaf de Fleur
Handritshöfundar: Hrafnkell Stefánsson og Olaf de Fleur
BORGRÍKI 2 from Olaf de Fleur on Vimeo.