Einhverjir hafa vafalaust velt fyrir sér hvort ekki sé til einfaldari leið til að setja hár dóttur sinnar í tagl. Benedikt Bóas, blaðamaður Morgunblaðsins og Kolfinna Katla, dóttir hans, horfðu fyrir skemmstu á myndband á Youtube, þar sem maður notaði ryksugu til að leysa þetta krefjandi verkefni.
Þau ákváðu að sjálfsögðu að prófa það.