Leikkonunnar saknað í viku

Misty Upham.
Misty Upham.

Lögreglan í Bandaríkjunum leitar að leikkonunni Misty Upham, 32 ára. Upham, sem er af indíánaættum, lék m.a. í myndinni August: Osage County ásamt Juliu Roberts og Meryl Streep. Hún fer einnig með hlutverk í nýjustu kvikmynd Jennifer Aniston, Cake.

Síðast sást til hennar er hún yfirgaf íbúð systur sinnar í Muckleshoot í Washingtonríki þann 5. október. Hún sagðist þá vera að fara að heimsækja vini sína. Ekkert hefur því spurst til hennar í heila viku.

Faðir leikkonunnar segir að hún glími við geðsjúkdóm og hafi nýverið skipt um lyf. Undanfarið hafi hún hegðað sér óvenjulega.

„Hún sagði mér og móður sinni að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af henni framar, mér fannst það hljóma eins og hún væri í sjálfsvígshugleiðingum og hafði því samband við lögregluna,“ hefur Sky eftir föður hennar.

Hann segir að hún hafi hótað því að svipta sig lífi nokkrum sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir