Á von á barni með fyrrverandi

Breski leikarinn Jude Law.
Breski leikarinn Jude Law. AFP

Breski leikarinn Jude Law á von á barni ásamt fyrrum kærustu sinni, söngkonunni Catherine Harding. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út fyrir hönd leikarans.

Harding, sem er betur þekkt undir sviðsnafninu Cat Cavelli átti í stuttu ástarsambandi við Law fyrr á árinu. Voru þau t.d. saman í sex vikur í Tékklandi þar sem Law vann við tökur á kvikmynd. Þetta kemur fram í frétt Sky News.

Harding, sem er 23 ára, á von á sér í vor.

Í yfirlýsingunni kemur fram að Law og Harding munu ala upp barnið saman. „Þó þau séu ekki lengur saman munu þau ala barnið upp í sameiningu,“ sagði meðal annars.

Law á þrjú börn með fyrrum eiginkonu sinni Sadie Frost og eina dóttur með fyrirsætunni Samantha Burke. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson