Susan Boyle vill ættleiða

Susan Boyle.
Susan Boyle. mbl.is/Cover Media

Söngkonan Susan Boyle, sem sló í gegn í raunveruleikaþættinum X-Factor árið 2009, sækist nú eftir því að ættleiða barn.

Boyle hefur sett sig í samband við félagsþjónustu og er nú ferlið byrjað. The Independent segir frá þessu og vísar í The Mirror.

„Þetta hefur verið að verða alvarlegt síðustu tvær vikur. Vonandi sést hvað ég get gefið mikið af mér,“ sagði söngkonan, sem er 53 ára gömul.

„Ég veit að ég er ekki gift og ég er komin yfir fimmtugt en ég bíð spennt.“

Þó svo að Boyle sjái fram á langt ferli segist hún aldrei hafa verið eins spennt fyrir barneignum og nú.

„Ég hef svo mikla ást til að gefa,“ sagði hún m.a. í samtali við The Mirror. „Ég vil ættleiða barn sem á ekki neitt, einhvern sem ég get gefið eitthvað. Þetta er mín leið til þess að gefa til baka til samfélagsins.“

Söngkonan hefur íhugað ættleiðingu í rúmlega ár. Hún gefur fljótlega út sína sjöttu breiðskífu og hefur aldrei getað eignast börn sjálf.

„Ég vil gefa barni það sem ég hafði ekki, og nú get ég gert það,“ sagði hún.

Hér að neðan má sjá Susan Boyle í fyrstu áheyrnarprufu sinni í X-Factor. Óhætt er að segja að hún hafi slegið í gegn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson