Breska poppstjarnan Pixie Lott syrgir nú ömmu sína í móðurætt en hún lést rétt áður en tólfta sería þáttarins Strictly Come Dancingin hófst. Lott er keppandi í þættinum.
Amma Lott, Peggy, hafði þjáðst af heilabilun í nokkur ár áður en hún lést. Missirinn tók mikið á Lott en hún ákvað samt sem áður að taka þátt í þáttunum.
„Ég frétti þetta um leið og ég kom frá L.A. Ég kom heim og þá voru foreldrar mínir þarna, þau tilkynntu mér þetta og mér var brugðið. Jarðarförin var bara nokkrum vikum áður en tökur þáttanna Strictly hófust. Þetta hefur verið erfitt en ég er staðráðin í að halda ótrauð áfram, ég veit að amma hefði viljað það,“ sagði Lott í viðtali sem birtist í Sunday Mirror dagblaðinu.