Er þetta ný kærasta Zacs Efrons?

Skjáskot af Instagram-síðu Zac Efron.
Skjáskot af Instagram-síðu Zac Efron. Instagram

Hjartaknúsarinn Zac Efron er sagður yfir sig ástfanginn af nýju kærustunni sinni, Sami Miró, en hvorki Efron né Miró hafa staðfest að þau séu par.

Efron varð 27 ára um helgina en hann naut afmælisdagsins með Miró í Amsterdam og sögðu sjónarvottar þau hafa litið út fyrir að vera hugfangin hvort af öðru.

„Þau létu eins og þau væru afar ástfangin. Hún faðmaði hann í gríð og erg, þetta var einlægt,“ sagði heimildamaður E! News.

Efron virtist skemmta sér vel í Amsterdam en hann sótti m.a. Amsterdam Dance Event-hátíðina ásamt Miró og nokkrum vinum þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson