Tori Spelling í einangrun

Tori Spelling er á spítala.
Tori Spelling er á spítala. mbl.is/Cover Media

Leikkonan Tori Spelling var sett í einangrun um helgina eftir að hafa leitað á spítala þar sem henni leið verulega illa og var með háan hita.

Að sögn heimildamanns E! News! var Spelling með hita, slæman hósta og átti erfitt með andardrátt. Spelling leitaði aðstoðar á Cedars Sinai-spítalanum og var sett í einangrun í stutta stund á meðan læknar rannsökuðu hana.

Spelling er enn á spítalanum og sætir meðferð vegna sýkingar í ennisholum og berkjubólgu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Spelling dvelur á spítala á þessu ári en fyrir hálfu ári dvaldi leikkonan í sex daga á spítala af ókunnum ástæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson