Vill engar spurningar um fangelsisvistina

Lindsay Lohan.
Lindsay Lohan. AFP

Leik- og söngkonan Lindsay Lohan er afar óánægð með spjallþáttastjórnandann Jonathan Ross en hún var gestur þáttar hans nýverið. Lohan var ekki sátt með að Ross skyldi spyrja hana út í þann tíma sem hún sat í fangelsi.

Þáttur Ross er sýndur á sjónvarpsstöðinni ITV en nú hefur Lohan farið fram á að yfirmenn ITV láti klippa þau atriði í burtu þar sem Ross spyr hana út í fangelsisvistina.

Þegar Ross spurði Lohan út í hvernig var að vera í fangelsi sagði Lohan: „Ég hef ekki hugmynd. Ég hef lokað á þann tíma. Allt í lagi. Þú setur þetta ekki í þáttinn.“

Þátturinn verður sýndur á ITV á morgun en þá kemur í ljós hvort yfirmenn sjónvarpsstöðvarinnar hafa orðið við beiðni Lohan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson