Dale Hopfinger glímdi við fágætt vandamál er hann ætlaði að kjósa í þingkosningunum í Michigan: Honum var sagt að hann væri látinn.
Starfsmaður á kjörstað sagði Hopfinger frá því að samkvæmt kjörskrá hefði hann látist 25. september. Hopfinger þurfti að beita öllum sínum sannfæringarkrafti til að fá loks að kjósa.
Hopfinger er enn að reyna að komast að því hvers vegna hann var skráður látinn. Sá sem heldur utan um skráningar fæðingar- og dánarvottorða telur að um mannleg mistök, innsláttarvillu, sé að ræða.
Hopfinger er 48 ára. Og sprelllifandi.