Kærasta Phelps fæddist með getnaðarlim

Taylor Lianne Chandler, kærasta Michael Phelps, fæddist með einkenni beggja …
Taylor Lianne Chandler, kærasta Michael Phelps, fæddist með einkenni beggja kynja. Facebook

Kærasta sundkappans Michaels Phelps heitir Taylor Lianne Chandler og er 41 árs, hún og Phelps kynntust á stefnumótaforritinu TinderChandler greindi nýverið frá því að hún hefði fæðst með kynfæri karlmanns.

Nýjasta stöðuuppfærsla Chandler á Facebook hefur vakið töluverða athygli en þar greindi hún frá því að hún hefði fæðst sem „intersex“ en það er hugtak sem er notað yfir þá sem fæðast með einkenni beggja kynja. Chandler sagði þá einnig frá því að hún hefði fengið nafnið David Roy Fitch. Chandler fæddist með getnaðarlim og leg en enga eggjastokka og engin eistu.  

„Áður en ég gat labbað og talað var ljóst að ég var stelpa,“ sagði Chandler sem fór snemma á unglingsárunum í hormónameðferðir. Þá var fæðingarvottorði hennar breytt ásamt nafni hennar. Eftir það gekkst hún undir skurðaðgerð.

„Ég var aldrei karlmaður, ég lifði aldrei eins og karlmaður. Það getur enginn sagst hafa þekkt mig sem karlmann,“ sagði Chandler.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson