Beyoncé gefur út nýtt myndband

Beyoncé bregður sér í ýmsa búninga í myndbandinu.
Beyoncé bregður sér í ýmsa búninga í myndbandinu. Skjáskot af Youtube

Nýtt myndband með söngkonunni Beyoncé Knowles er nú óvænt komið á netið en það er við lagið 7/11.

Söngkonan á það til að koma aðdáendum sínum á óvart en hún gaf til að mynda óvænt út plötuna BEYONCÉ í desember á síðasta ári.

Í nýja myndbandinu sést stórstjarnan dansa í ýmsum herbergjum á hóteli ásamt flokki kvenna. Dillar hún sér m.a. með hárþurrku, hoppar í rúmi, skríður á gólfi og snýr sér í skrifstofustól úti á svölum.

7/11 verður á næstu plötu söngkonunnar sem kallast BEYONCÉ Platinum Edition. Gera má ráð fyrir því að það sé þá endurbætt útgáfa af plötunni sem kom út fyrir ári.

Myndbandið má sjá hér að neðan. Miðað við ummæli notenda er álit fólks á laginu misjafnt en búið að er að horfa á myndbandið rúmlega 1,9 milljón sinnum.

Stórstjarnan er með her kvenna með sér í myndbandinu.
Stórstjarnan er með her kvenna með sér í myndbandinu. Skjáskot af Youtube
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson