Svaraði gagnrýni með bikiní-mynd

Ariana Grande (t.v) svaraði gagnrýni með því að birta þessa …
Ariana Grande (t.v) svaraði gagnrýni með því að birta þessa mynd af Bette Midler á Twitter. Samsett mynd/ AFP/Twitter

Leik- og söngkonan Bette Midler gagnrýndi nýverið alla unga skemmtikrafta sem notast við ævafornu spekina „kynlíf selur“ til að koma sér á framfæri. Midler, sem er 68 ára, minntist sérstaklega á söngkonuna ungu Ariönu Grande.

Grande var ekki lengi að svara Midler, það gerði hún með að birta mynd á Twitter af Midler á sínum yngri árum en myndin sýnir Midler þar sem hún er klædd í lítið bikiní uppi á sviði.

„Þetta er hræðilegt. Það kemur alltaf á óvart að sjá einhvern eins og Ariönu Grande, með þessa kjánalegu rödd, skaka sér á sófa. Ég meina, þetta er ótrúlega asnalegt og ég veit ekki hver er að segja henni að gera þetta,“ sagði Midler í viðtali við The Telegraph. „En mér kemur þetta ekki við. Kynlíf selur, kynlíf hefur alltaf selt.“

Grande virðist vera henni hjartanlega sammála um að kynlíf selur. Hún tók undir orð hennar þegar hún birti myndina af ungu Midler. Grande benti þó á að Midler væri yfirlýstur femínisti og því þætti sér skrýtið að hún gagnrýndi aðrar konur sem gerðu það sem þeim sýndist.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson