Gifta sig á gamlárskvöld?

Leikaraparið Johnny Depp og Amber Heard.
Leikaraparið Johnny Depp og Amber Heard. mbl.is/AFP

Leikarinn Johnny Depp hefur boðið öllum sínum nánustu vinum að koma og verja gamlárskvöldi með sér og unnustu sinni, Amber Heard, á einkaeyjunni sinni sem er í Karabíska hafinu. Grunur leikur á að þau ætli að ganga óvænt í það heilaga á seinasta degi ársins.

Meðal þeirra sem hafa fengið boðskort í fögnuðinn eru Steven Tyler, Marilyn Manson, Helena Bonham Carter og Tim Burton.

„Johnny er vanalega hófsamur þannig að þetta stóra gamlárspartý kemur á óvart. Hann er að bjóða sínum nánustu. Hápunkturinn verður stærðarinnar veisla,“ sagði heimildamaður The Sun dagblaðsins. „Vinir hans hafa velt því fyrir sér hvort að þetta sé hans leið til að halda brúðkaup án þess að gera mikið mál úr því.“

Depp og Heard trúlofuðu sig í janúar en þá höfðu þau verið saman í tæp tvö ár. Sá orðrómur komst svo á kreik ekki alls fyrir löngu að samband þeirra héngi á bláþræði eftir að Depp hagaði sér undarlega á Hollywood Film Aw­ards (HFA) hátíðinni í nóv­em­ber.

Sam­bandið hang­ir á bláþræði eft­ir að Depp „gerði sig að fífli“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson