Snemmbúin jólagjöf frá Madonnu

Poppdrottningin er ekki af baki dottin þrátt fyrir að hafa …
Poppdrottningin er ekki af baki dottin þrátt fyrir að hafa verið lengi í bransanum. mbl.is/AFP

Í dag gaf Madonna óvænt út sex ný lög mörgum mánuðum á undan áætlun. Mun útgáfan koma til vegna þess að lögunum hafði þegar verið lekið á veraldarvefinn í ófullbúinni mynd.

Lögin eru öll af nýjustu plötu Madonnu sem væntanleg er í mars. Sú ber titilinn Rebel Heart og er sú fyrsta sem söngkonan sendir frá sér í þrjú ár.

„Ég vil frekar að aðdáendur mínir heyri lokaútgáfur þessara laga en þær ókláruðu útgfáfur sem ganga nú manna á milli. Lítið á þessi sex lög sem snemmbúna jólagjöf,“ sagði Madonna í yfirlýsingu.

Eitt af nýju lögunum „Living for Love“ er sagt minna um margt á fyrstu smelli Madonnu en hún er sögð hafa hugsað sér að gefa það út á Valentínusardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson