Komin heim úr brúðkaupsferðinni

Benji Madden og Cameron Diaz eru komin heim úr brúðkaupsferðinni.
Benji Madden og Cameron Diaz eru komin heim úr brúðkaupsferðinni. Samsett mynd /AFP

Cameron Diaz og Benji Madden gengu í það heilaga í seinasta mánuði og fóru svo í látlausa brúðkaupsferð til Wyoming, þar skelltu þau sér á skíði. Lítið hefur sést til skötuhjúanna eftir að þau giftu sig en á mánudaginn sást til þeirra í Beverly Hills.

Hjónin fengu sér hádegisverð á Four Seasons-hótelinu og hittu svo Joel Madden, bróður Benjis, og eiginkonu hans, Nicole Richie.

Diaz og Madden gerðu sitt allra besta til að láta lítið fyrir sér fara og fóru inn um bakdyrnar, samkvæmt heimildum E! News.

Hvorugt þeirra hefur tjáð sig opinberlega um brúðkaupið né deilt myndum frá stóra deginum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson